Landsliðið í cod - Fyrsta úrtak Þá er komið að því að koma þessu landsliði í gang aftur. Þar sem enginn bauð sig fram á móti mér sem fyrirliða tek ég því sem samþykki ykkar á því að ég skuli taka þetta að mér aftur. Þetta verður gert með svipuðu sniði í ár og í fyrra, en þó höfum við meiri tíma í undirbúning núna en áður. Þess vegna hef ég valið 14 manna hóp sem mun koma til með að æfa saman næstu vikurnar til þess að sjá hverjir eru hentugastir í þetta. Svo mun ég skera hópinn eitthvað niður (ekki er ennþá búið að ákveða hver endanlegur leikmannafjöldi kemur til með að verða).
Endilega tjáið ykkur um þennan hóp en hafið í huga að þetta er ekki endanlegur hópur.
Fyrsta úrtak er svohljóðandi:

bloomberg
Bombebein
CigarO
Corvus
F4nAtiC
Gerrard
G4rri
kallinn
Konev
Ljungberg
L0zt
Mr.Weekend
Oddur
Typh00n
Waldez

Ég vil biðja alla þá leikmenn sem hér voru nefndir um að hafa samband við mig og vona ég að þeir séu tilbúnir til þess að gera sitt besta til að sýna það sem allir eiga að vita…
Ísland ER bezt í heimi!
- Waldez