Eftir að hafa setið yfir hugsunum, pælt í hlutunum og rætt við helstu hjálparhellur mínar hefur landsliðshópurinn verið valinn. Þetta er 11 manna hópur sem kemur til með að æfa stíft saman til þess að ná settum árangri, að komast upp úr riðli! Ef einhver þeirra sem ég tel upp á þessum lista hér á eftir hefur ekki áhuga eða getur ekki séð sér fært um að taka þátt í æfingum og keppni með landsliðinu vil ég biðja viðkomandi að hafa samband við mig sem fyrst, svo hægt sé að finna staðgengil sem allra fyrst.
Nations Cup hefst svo 16. apríl. Fram að þeim tíma ætlast ég til þess að liðið æfi daglega, leggi á ráðin og komi vel undirbúið til keppni.
Hópurinn verður eftirfarandi:

úr Adios:
Waldez
F4nAtiC^
Kail
Konev

úr SeveN:
Oddur
Klemmi
Crazy_bastard
Dev1l

úr ha$te:
Glyptic

úr Triz:
M4ttuz*

úr clanleysu:
Spirit

Ég vona að allir hér að ofan geti séð sér fært um að taka þátt í þessu og geti svo gert þjóð sína stolta.
Fyrir hönd íslenska CoD-samfélagsins vil ég segja: ÁFRAM ÍSLAND!
- Waldez