Lesið þetta og reynið að skilja.

Ekki veit ég hvernig þið hegðið ykkur dags daglega í mannlegum samskiptum, en ég þykist nokkuð viss um að þau feli ekki í sér líflátshótanir og þvíumlíkt!

Það er núna búið að kvarta undan vissum einstaklingum og munu þeir verða bannaðir á næstum dögum.

Ég tek svona saurkjaft MJÖG alvarlega og refsa mjög harkalega fyrir. Bannlengd verður talin í mánuðum.

Ef þið eigið í vandamálum með skapið eða hormónana þá skuluð þið unbinda ‘say’ takkann ykkar svo þetta komi ykkur ekki í koll.

Þið sem voruð að spila í nótt og voruð með þennan sora, þið vitið hverjir þið eruð.
Og ég veit hverjir þið eruð!
Skemmtið ykkur án simnet servera núna yfir jólin og lengur.

Þetta gildir einnig sem aðvörun fyrir ykkur sem finnst skemmtilegt að vera með siðlaus nick.

Hugsið aðeins hverjir eru að spila þennan leik með ykkur. Ég er ekki að fara að leyfa 8 ára frænda mínum spila á leikjaþjónum þar sem svonalagað viðgengst.

Ef þið eruð í vafa um hvort eitthvað megi, þá er það bannað.

'When in doubt, there is no doubt'.

Þið hafið verið varaðir við!
Ykkur hefur verið refsað!
Og ykkur mun áfram verða refsað fyrir þessa gífurlegu heimsku og ókurteisi!


izelord
Það besta sem guð hefur skapað er nýr dagur.