Ef þið hafið skoðað forumin á eve.is nú á dögunum hafið þið kannski tekið eftir þegar náungi að nafni “NightX” var einfaldlega flæmdur í burtu af grimmum og leiðinlegum posturum.

Þetta var eitthvað um að NightX varð fúll útaf árásunum á bandaríkin nú á dögunum (reif smá kjaft) og fyrir það fóru nær allir í einkastríð við hann.

Hann féllst hinsvegar á að róa sig vegna virðingu sinni fyrir eve og umsjónarmönnum forumanna. En hann var áfram böggaður af leiðindapúkum og ákvað að lokum að láta ekki sjá sig á forumunun framar.

Mér þótti leiðinlegt að sjá svona lagað gerast, jafnvel þótt að NightX hafi kannski ekki “hagað sér” þá á svona lagað ekki að koma fyrir! >:|

Ég bið ykkur sem farið þarna reglulega að reyna að koma í veg fyrir að svona lagað endurtaki sig.

THANK YOU!

Karkazz<br><br><hr>
<p>
<i>“If there were no God, it would be necessary to invent him”</i
EvE Online: Karon Wodens