Sæl öllsömul.

Ég er fyrrverandi WoW spilari sem er orðinn mjög leiður á leiknum. Mig langar í rólegri leik og er að spá í að byja í EvE.

Ég hef byrjað að spila EvE tvisvar áður, fyrst í betunni og fílaði hann ekki. Síðan reyndi í á síðasta ári en hætti fljótt og fór aftur í WoW.

Núna langar mig að steypa mér í leikinn, svo ég spyr, er of seint að byrja spila núna ? Það er náttúrulega fullt af fólki sem er búið að vera spila síðan leikurinn kom fyrst út, á maður nokkuð möguleika að geta keppt við þetta fólk í leiknum þegar lengra er komið, hvorki efnahagslega né “stríðs”-lega ?

Kveðja,
Sblenderinn