Það er alger misskilningur hjá spilurum Eve að vera alltaf að gefa byrjendunum skip, búnað, ISK og svona hitt og þetta… Eve er harð-kapítalískur heimur og þeir sem þar eru verða að geta séð um sig fjárhagslega upp á eigin spýtur. Þegar einhver gefur einhverjum aula (skemmtilegt orð yfir n00b) einhverjar svaka fancy græjur eyðileggur hann það sem þessi leikur snýst um… eða allavega finnst mér það.