Alveg er þetta yndislegt.
Ég hafði tekið mér 20 daga frí frá Eve sökum prófa, en hafði ætlað mér að snúa aftur samdægurs og prófinn kláruðust (í dag).
Þannig að ég leyfði accountinum að renna út þann 26 nóv. og ákvað að borga ekki fyrr en 15.

Nú hef ég ekki verið að fylgjast mikið með Eve og ætlaði ekkert að setja mig inní þetta fyrr en ég væri kominn aftur í gang með accountinn minn.
Nú jæja, um leið og prófum lauk í MS þá rölti ég niður í BT skeifuni og ætlaði að kaupa mér game card. Þau voru því miður uppseld þannig að ég gekk aðeins lengra, þangað til ég endaði í Task. Þar fengust 50 daga kort og ekkert vandamál þar.

En svo þegar ég kem heim þá drífi ég mig á www.eve-online.com til að virkja accountinn. Allt gengur vel þangað til ég reyni að logga mig inná.

Viti menn, ÞAÐ ER FRIGGIN DOWNTIME.

Ég sem hafði hlakkað svo til að mæta til leiks á ný. Ég þurfti t.d. að setja nýtt skill í gang. En það vill svo leiðinlega til að þessi downtime fór í gang kl. 20 í gær þannig að ég þarf að bíða núna til kl. 8 í kvöld.
En þá verð ég svo óheppinn að ég er að fara á jólaball Verzló og mun því ekki verða heima þegar serverinn kemur aftur upp, og trúlega ekki fyrr en á morgunn.

Andskotinn.