Mig langar að biðja ykkur um álit. Þannig er að ég er í empire að gera missions á fullu, er alveg að græða svona 20m á dag ef ég er duglegur, það er samt alltaf þessir gaurar sem eru að reyna að draga mann í 0.0 geiminn en ég hugsa alltaf, hey ég þori því ekki, ég kann ekkert í pvp og hef ekki efni á að missa skipin mín, þó þau séu tryggð auk þess sem ég er með frekar dýr implants sem mig langar ekki að missa, ég er eiginlega bara æfður með missile launchera sem gagnast lítið í pvp og mjög lítið í gunnery.
Segið mér hvað er sniðugt að vera í 0.0, ég skil að það er meira fjör, en það er líka fjör í las vegas meðan maður á pening. Ég er heldur ekki þannig gerður að ég nenni að fara að binda mig einhverju corpi eða alliance. Ég er samt alveg til í að fara að víkka sjóndeildarhringinn
Hvað finnst ykkur? Hvernig er best að byrja í 0.0 ef maður á takmarkaða peninga?