Hvað er eiginlega málið með trygginguna á elite friggum og cruiserum. Maður er að borga alveg helling fyrir skipin. Tökum bara Deimosana mína t.d. ég er að borga 75millur fyrir stykkið en get mest fengið 8millur fyrir platinum tryggingu. Ætti ekki að hafa mun dýrari tryggingar á þessum skipum.
Ég veit að þegar maður er farinn að nota þessi skip þá er líklegast að maður er með nokkuð feitt “wallet”, en það þýðir samt ekki að manni er sama um að missa þennan pening.
Svo eru sumir sem munu pottþétt segja að maður eigi ekki að þurfa tryggingu á þessi skip út af því að maður á ekki að vera poddaður í svona tæki, en það er bara rugl.
Svo er líka alveg nóg að missa draslið sem maður er með fittuð og óþarfi að bæta gráu ofan á svart með skipa kostnaðinum.
Er þetta kannksi eitthvað sem CCP ætti að athuga.