Mer er spurn!!!


Hvernig er það, þegar eitthver er buin að vera algjör vondirass og ákveður að skella sér í smá frí í eitthverju tropical sun Goo baði. En það vill svo rosalega illa til að það fæst bara á
Treflon 7, sem andsk… hafi það á mjög háu security svæði.

Jæja, vondirassinn lætur sig hafa það og skellir sér inn í þetta lögregluríki, hann lendir í smá skærum en dallurinn hans helst saman og hann er alveg að komast í baðið sitt, þegar eitthver heljarinnar Titan sem að ég er að sóla mig á, í leit að vondum rössum eins og þessum, flýgur óvart upp að rassinum á honum og gerir alla drauma hans um bað að engu.

Hvernig stendur þá á því að svona margir vilja vera vondir???
Ætla öll Corpinn að láta starfsmennina sína komast upp með eitthver myrk plot gegn öllu góðu og gildu??