Ég var að installa Eve aftur eftir tæplega árs frí. Þegar ég síðan var að opna leikinn eftir install kom bara byrjunarmyndin sem kemur áður en log in myndin kemur. Fékk með þessu msg um að ég þyrfti DirectX 9.0b til að keyra leikinn.
Ég fór beint á windows síðuna og sótti DirectX 9.0c sem er nýrri útgáfa, installaði henni og reyndir aftur. Sama vandamál kemur upp, byrjunarmyndin en ekkert meira. Nú kemur ekkert um DirectX þörf reyndar. Þetta dæmi er að pirra mig töluvert því að ég er með 128 mb Geforce4 ti 4200 kort (nýjasta driver) sem á ekki að vera í vandræðum með þetta…..
Hvaða rugl er í gangi?