Marmonny, eða aparass hér á huga, hefur verið að gera EVE-spilara vitlausa vegna þess að þessi gaur er alltaf að rífa kjaft og vera með leiðindi, bæði hér á huga og á íslensku chat-rásinni í EVE. Það hefur orðið til þess að hann er hataðasti íslenski EVE spilarinn sem til er(Mér skilst að fólk hafi verið að gera sér að leik að hunta hann og svona, sem er náttúrulega bara gott mál enda á hann það fyllilega skilið fyrir að vera með þessi endalausu leiðindi). Í dag tilkynnti hann svo á íslensku chat rásinni í EVE að han ætli að hætta að spila EVE, við mikinn fögnuð viðstaddra.
Ég er samt að hugsa, er ekki hægt að gera eitthvað til að stoppa svona leiðindagaura? Ég hef lesið um það á öðrum áhugamálum hér á huga að fólk hafi einfaldlega verið bannað á huga. Ég veit ekki hvort það þýði að viðkomandi hafi ekki komist inn á síðuna eða hvort það þýði að viðkomandi geti ekki tjáð sig hér en hvort sem það er, þá á að gera það við svona fólk. Fólk sem gerir í því að vera leiðinlegt og skemma gamanið fyrir öllum öðrum á að fyrirgera þar með rétti sínum til að vera með. Fyrst þegar ég fór inn á þetta áhugamál sá ég ekkert annað en móral hér og það virtist vera að þetta væri hundleiðinlegur staður þó það kæmi fljótlega í ljós að alltaf væri þetta sama manneskjan. Hver veit nema fólk sem komi hér inn sjái það sama og fari að halda að hér sé ekkert nema 11 ára strákar sem eru sífellt að rífast?
Mín skoðun er einfaldlega sú að það eigi að losa sig við svona fólk, og það hið fyrsta, fólk á ekki að komast upp með svona. Það er ástæðan fyrir því að það ert hægt að kikka fólki af serverum og irc-rásum o.s.frv.
Endless Power? This is Perfect! - Bryan Fury