Jæja ég er bara svona að pæla í ýmsu í sambandi við Eve, er nebblinlegast að pæla í að byrja í honum um mánaðarmótin.

Það er nú þannig með mig að mig langar að gerast smyglari, s.s. fljúga með ólögleg og illfáanleg efni úr illræmdum sólkerfum og selja þau dýru verði þar sem löggæslan er mest.

Núna var ég bara að velta fyrir mér er einhver séns á þessari tegund af spilun? Eru ólögleg efni í eve? Ef svo er stöðvar lögreglan fluttning á þeim um high security svæði??

Væri gott að fá að vita þetta ef einhver fróður maður nennir að hella úr viskubrunnum sínum yfir mig.

Með fyrirfram þökk.

Halldór K.