Ég er svolítið forvitinn á að vita hvað það eru margir íslendingar að spila Eve. Undanfarið hef ég hitt marga íslendinga sem ég hef aldrei hitt áður, jafnvel spilara sem hafa verið að spila síðan launch. Er einhver hérna sem veit eða hefur heyrt hvað það eru margir sem eru að spila?

Einnig virðist vera að það séu margir sem hreinlega vita ekki af in-game rásinni #iceland, og aðrir sem vilja sjálfsagt forðast landa sína eins og heitan eldinn :)

Ef einhver hefur hugmynd um hvað það eru margir íslendingar að spila má hann/hún endilega hafa samband við mig. Annaðhvort hérna eða senda mér mail í Eve.

Kveðja,
Znaei -Thundercats-<br><br>Wise man once said: “ Where ever you go…. well, there you are”
Flatus Lifir Enn