Mayhem Inc. er málaliða fyrirtæki sem ég er ný búinn að búa til og er þetta sama fyrirtæki sem var búið til fyrir um það bil 7-8 mánuðum síðan nema hættir að vera sjóræningjar. Markmið okkar í EVE er að verða þekktir sem þeir allra bestu í bransanum. Ég segi ykkur núna að við munum gera allt sem í okkar valdi stendur til að klára verkefni okkar og munum þess vegna byrja stríð ef það er nauðsinnlegt. Við tökum að okkur allt frá því að halda lág örigis loftsteina fylkingu til styrjaldar ef þið borgið okkur fyrir. Mayhem er ekki með neina framleiðsludeild og er skipulagið okkar að kaupa einfaldlega allt sem okkur vantar af markaðnum en höfum hugsað okkur að framleiða skotfæri og flugskeyti eftir þörfum til að halda kostnaði niðri. Við höfum alltaf áhuga á að fá nýja flugmenn til að berjast við hlið okkar en flugmenn verða að hafa eða ætla sér að þjálfa sig í annað hvor í notkun flugskeyta, notkun gunnery eða Electronic Warfare. Allir sem hafa áhuga á að ganga í lið með okkur eða að fá okkur til að gera verkefni fyrir sig eru hér með beðnir um að koma inn á Mayhem spjallið okkar ingame og við getum ræt saman.