ég hef tekið eftir því að margir kvarta undan því að “ekkert sé að gerast” í hinu og þessu corpi…

persónulega þá finnst mér svoleiðis röfl bara óþolinmæði…þetta er nú einu sinni leikur sem kemur til með að ganga í nokkur ár…ég held að fólk sé ekki búið að átta sig á þeirri staðreynd. Þess vegna eru allir að keppast eitthvað svo rosalega mikið núna.

Allavega, sumir þurfa líka að vinna og sinna kærustum…og tíminn sem fer í eve er kannski 3 tímar á dag (vona ég)

það er alveg nóg til þess að sjá til þess að allt gangi eins og það á að gera og þvíumlíkt…mér finnst það bara dónaskapur að ætlast til þess að maður sé alltaf í leiknum til þess að sinna hverju sem upp á gæti komið um leið og það gerist…

slíkt gerist ekki!

bj0rn - …þolinmæði er dyggð