Mig langar mikið til að vita hvort ekki sé hægt að fá Demó af þessum leik? Ég er kannski ekki til í að eyða 3 - 4 þúsund krónum í leik sem mig langar svo kannski ekki að spila. Flestir góðir leikir sem komið hafa á markaðinn hafa boðið upp á frítt demó af leiknum en ekki bara screenshots eins og virðist vera raunin með EVE. Eins hef ég verið að reyna að finna út hvaða kröfur eru gerðar til tölvubúnaðar, það segir manni ekki neitt að þetta þurfi að vera N-vidia skjákort, það vantar lágmarks stærð…sumir segja 32Mb aðrir 64Mb lágmark. Veit eitthver hvar þessar upplýsinar liggja eða hvort þær séu yfirhöfuð til?