Eins og staðan er í EVE heiminum í dag, þá langar mig að forvitnast aðeins og spyrja þá sem vita það, hverjir eru stærstir í EVE í dag, þá í heiminum ? og á íslandi? sem sagt hvaða corp.
Eru einhverjir sem eru að spila í dag sem eru með afgerandi yfirburði yfir öðrum og hvernig er þetta allt að þróast.
Ég spyr vegna þess að það eru eflaust einhverjir sem eru að velta þessu fyrir sér.

Hvernig er staða íslenskra corpa? höfum við eitthvað í erlend corp? verða þau ekki mikið sterkari en okkar ? Og hvað getum við gert til þess að standa í þeim

Ég er mjög spenntur fyrir EVE og kaupi mér hann eflaust þó að ég sé ekki í beta testinu eða neitt svoleiðis, bara þessi hugmynd sem heillar mig. Og ég sæki mjög líklega um í einhverju góðu corpi.

En það sem ég var líka að velta fyrir mér var að hvort að við hérna á íslandi (allavegana einhver corp) ættum ekki að standa saman um einhver málefni, þar sem þessi leikur snýst nú að miklu leiti um stærð og völd. Þótt að við þurfum ekki að sameinast í eitt clan þá væri gott að vera í bandalagi.

En það er kannski ekki það sem leikurinn snýst um að öllu leiti og auðvitað er hægt að spila hann eins og manni sýnist.

En mér þætti gaman ef að einhver vitur gæti svarað þessum spurningum mínum af skynsemi.

bragif