Að gefnu tilefni. Bæði hér og á ircinu vill ég taka smá tíam í að minna ykkur á eftirfarandi. Þið megið ekki segja frá því ef þið eruð í Alpha testinu. Liggur við á hverjum degi komi einhver á opna rás á ircinu og byrjar að blaðra um \“já ég er búinn með þetta\” og \“er að bíða eftir þessu\” og \“búinn að fá þetta meil bíð eftir næsta\”. Þetta er allt brot á trúnaðarsamningi sem þið hafið skrifað undir.

Í samningum kemur meðal annars fram \“prófandi heitir fullum trúnaði um þáttöku sína í prófunum leiksins\”

Bara í dag hef ég séð að minnsta kosti 6 einstaklinga brjóta þennan samning. Þið eruð ekki að gefa góða ýmind af ykkur. Þetta er ástæðan fyrir að það er aldurstakmark í betuna. Auðsjánlega geta sumir einstaklingar (nokkrir undir aldri) ekki staðið við lagalega bindandni samninga eða haft stjórn á sér.

Ég bið ykkur um að reyna hafa einhverja stjórn á sér og reyna bera smá virðingu fyrir starfsmönnum CCP og líka fyrir sjálfum sér. Því sjálfsvirðingin getur ekki verið uppá sitt besta þegar farið er og brotið lög hægri vinstri.

Reynið að fylgja settum reglum og njóta þess að vera svo vel settur að vera í alpha testing í friði. Þið þurfið ekki að segja öllum frá þessu.

Ef ykkur dauðlangar svo að tala um ykkar þáttöku í prófununum þá getið þið haft samband við Zaphod_B eða Nobby á ircinu og ég get bent ykkur á staði þar sem hægt er að ræða þetta í friði.



p.s.Einnig vil ég nota tækifærið og minna meðlimi Raid, arcanum og ARTS að senda Nick, Char name, callsign, deild og email á gusti@pentagon.ms eða kvistur@hotmail.com

General Talon Karde
Arcanum Industrial
ARTS division
————————-