Jæja hérna var ég veikur og í gúddí fíling að blaðra á irkinu að ég heyri e-ð undursamlegt í sjónvarpinu.

Ég sneri mér við og jú mikið rétt kraftaverk var að ske. Viðtal við the main dude í CCP hann Lekjart (correct me if im wrong).

Var talað mikið við þennan merkismann og hann sagði frá background leiksins. Frá hvaða leik hugmyndin kom (Elite) og ýmiss önur gullkorn um CCP.

Einnig var sýnt út nýjasta trailernum og meiri Enviroment skot með snúandi skipi. Þar fékk ég einnig að glitta í Illa svalar in game character models í full 3D sem hreyfast.

Tekið var upp í hofinu að klapparstíg og fengum við aftur að sjá þetta dýrindis fiskabúr þeirra Jove manna.

Þetta var þátturinn Þátturinn og er endursýndur núna á morgun (laugardag) klukkan kl. 17:30

Með kveðju yours truly
General Talon Karde ARTS

Recruitment commander at gusti@pentagon.ms og Zaphod_B on irc
————————-