Ákveðið var að halda smá pvp tournament í corpinu sem ég er í. Reglurnar voru einfaldar. Tech 1 cruiser að eigin vali og tech 1 útbúnaður. Ekkert tech 2 eða named rusl. Barist yrði til dauða. Einungis fyrsta sætið myndi skipta máli því að skipin sem annars ættu að berjast um 3. sæti myndu auðvitað vera ónýt. Vinningurinn yrði allt loot og 10 million isk sem að fyrirtækið myndi gefa.

Því miður þá gat ég ekki sjálfur tekið þátt sökum slakrar nettengingar og lélegrar fartölvu (andskotans sumarfrí í öðru landi með crappy nettengingu(Bandaríkin)) þá þurfti ég að fylgjast með í covops og vera dómari þar sem að ég treysti mér ekki til að berjast á tengingunni minni.

Við erum mission running corp og er þetta því ágætis pvp æfing. Ég ákvað fyrstu bardagana(án þess að vita skipin) og bardaginn hófst.

8 skip skráðu sig, 3 thorax, 2 rupture, 1 celestis, 1 arbitrator og 1 caracal

8 liða úrslit:

bardagi 1: Thorax gegn Caracal: Caracal vinnur því thorax laggar út úr leiknum, reglurnar segja ENGAR AFSAKANIR og caracal vinnur því auðveldan sigur.

bardagi 2: Celestis gegn rupture: Celestis + jamming drones jammar rupturinn algjörlega og nær að drepa hann hægt en örugglega með 3 200 mm railguns og 1 heavy missile launcher

Bardagi 3: Arbitrator gegn Rupture: rupture vinnur með 58% structure og sannar að skill skipta máli í þessum leik.

Bardagi 4: Thorax 1 gegn Thorax 2: Báðir með mwd, blasters og hammerheads. Thorax 2 vinnur með yfirburðum enda er flugmaðurinn með 32 million sp gegn 5 million sp, aftur þá skipta skillin máli.

fjögurra liða úrslit:

bardagi 1: Celestis gegn Caracal: Caracal flengir Celestis því að Celestis mistekst að jamma caracalinn( caracal flugmaðurinn er CEO í fyrirtækinu og er stelpa í alvörunni(ekki að það skiptir máli)).

bardagi 2: Rupture tekur thorax, báðir eru settir upp fyrir close range combat, en það sem að bjargar rupture er það að hann hefur 1600mm plate, thoraxinn hefur einungis 800mm.

úrslitabardaginn:

Caracal gegn rupture:

Rupture gerir grundvallar mistök, skiptir út mwd fyrir afterburner til að geta notað pg aðeins betur og gleymir að ná í nýja dróna sem að höfðu eyðilagst í fyrri bardaga, caracalinn er með mwd og heldur sig í 20 km+, rupture með autocannons kemst ekki nálægt caracalinum og deyr mjög slæmum dauðdaga.

Caracal vinnur því keppnina. Mjög svo óvænt úrslit.

Ég ætla mér að taka þátt í næstu keppni og ætla mér sko að sýna að thorax er besta skipið fyrir pvp.
Ég hef talað.