Það stendur yfir kosning á VoodooExtreme.com um hvaða Massively Multiplayer Online Roleplaying Game (MMORPG) fólk hlakki mest til. Ég fór sem sannur íslendingur og EVE nöttkeis og kaus.<p>

Í þessum skrifuðu örðum er EVE með 7% eða 60 atkvæði af 806 atkvæðum í 5. sæti rétt á eftir Planetside í 3. með 67 atkvæði og Dark Age of Camelot með 66 atkvæði. Langeftist eru þó World of Warcfraft frá Blizzard með 212 atkvæði eða 26% hlut og Star Wars Galaxies frá Verant með 194 atkvæði eða 24%.

Svo ég skora á þig hugamaður (konur eru líka menn) að draga fram slátrið, íslenska brennivínið og hákarlinn, draga fram þjóðarstoltið og skella atkvæði á EVE Online á http://www.voodooextreme.com.