Nú á laugardinn (11. ágúst) var opið spjall við 2 starfsmenn CCP. Ágúst (Solaris) og Hrafnkell (Clover) litu við og svöruðu spurningum fróðleiksfúsra. DrTwister stóðu fyrir þessu spjalli og segja þeir að þetta verði gert aftur eftir ca. 2 mánuði.
Rúmlega 40 spurningum var svarað þarna af misjöfnum toga. Ekkert mjög nýtt kom þarna fram nema kanski að það er hálf staðfest að opin beta verður í desember.
Þeir sem vilja lesa þetta allt er bent á <a href="http://www.dexensden.com/ccp/dtnchat.php">Dexen's Den</a> en þar er búið að setja spjallið upp í læsilegt form.
Kwai