Venjulega myndi þetta ekki falla í flokk greina, en mig langar til þess að sem flestir taki eftir þessu og fái að segja sitt álit.

Fyrst langar mig að formlega heilsa öllum sem stunda þetta áhugamál. Sjálfur er ég búinn að spila Eve síðan 6. maí 2003 og geri enn með mína 2 accounta. Nýlega var ég tekinn inn sem stjórnandi yfir áhugamálinu ásamt Orkzilla og saman ásamt GraPhix ætlum við að reyna að koma meiru í verk heldur en gert hefur verið undanfarna mánuði.

Mér datt fyrst í hug var að koma á einhvernskonar leik eða samkeppni og fá CCP til að gefa verðlaun (1 mánuð frían t.d.).

Það sem mig langar að vita er það hverjar hugmyndir ykkar fyrir áhugamálið séu? Hvað langar ykkur að sjá gert, hvað má bæta og hverju má breyta?

Endilega segið ykkar álit.