Ætla allir að spila Minmatar? Ég heyri nefninlega svo mikið talað um clön, og mér þykir það nefninlega vera eitthvað sem eigi bara við þá (eða eru þetta kannski áhrif einhverrar Quake/Shooter-menningar?)

Ég sé ekki fyrir mér að t.d. Caldari mercenary eða Gallente verslunarmaður myndu vilja vera kallaðir meðlimir í “Clani”, þeir vildu sennilega eitthvað örlítið fágaðra.

Hvernig væri að menn kæmu sér nú í rétta fílínginn og færu að tala um Bands, Tribes, Companies, Corporations, Units, Organizations, Federations, Confederates, Unions …whatever, eða ætla menn kannski ekki að taka þátt í bakgrunni leiksins heldur bara nýta EVE sem einhverskonar vél fyrir massíft, heiladautt, PvP combat í anda Quake/Shootera?

Vargu
(\_/)