Ég hef verið í morpg leikjum síðan uo kom fyrst út hér fyrir rúmlega þremur árum.
Ég hef horft á fleiri fleiri leiki, byggða á æðislegum hugmyndum hverfa ofaní klósettið og aldrei verða að raunveruleika.
Hversu nálægt því að verða tilbúnir og þeir voru þá á endanum var hætt við.
Svo ég spyr, áður en þið farið að setja upp klön fyrir leikinn og hugsa allt of mikið út í þetta, eruð þið alveg vissir/viss um að leikurinn verði gefinn út?
Origin/Ultima Online2 var online leikur sem beðið var með hrikanlega mikillri eftirvæntingu (jafn mikið og neverwinter nights) en þrátt fyrir trailera, og allt systemið var sett upp þá hættu þeir við.
Nokkrum mánuðum áður en hann átti að koma út.
Svo að þið ættuð að hafa varan á áður en þið komið með stórar yfirlýsingar á því hvað þið ætlið að gera þegar leikurinn kemur út.
Hugsið meira til þess hversu skemmtilegt yrði EF leikurinn kemur.