Sælt veri fólkið,

Keppnin er búinn að fá frábærar viðtökur og skemmtilegt að sjá hvernig það lifnaði yfir hugi.is/eve.

Greinunum hefur flætt inn ásamt myndum og könnunum og ræður maður varla við að lesa allan þennan fjölda sem berst inn á degi hverjum. Ég ætlaði líka að láta ykkur aðeins vita um stöðuna á ISK pottinum á Evening Soul characterinum en það er búið að leggja inn heilar 50 þúsund krónur og verður skemmtilegt að sjá hver hreppir hnossið í ágúst.

Ég er sjálfur búinn að leggja í pottinn 2 milljónir ISK sem fer til sigurvegarans. Vonandi að einhverjir sjái sér fært að gera slíkt hið sama þó svo að þeir ætla sér ekki að taka þátt í keppninni því þetta gerir leikinn skemmtilegri.

Good hunting…