Þegar Gallente ríkið var stofnað fyrir um tveim öldum síðan voru Caldari fyrirtækin þegar byrjuð að ná völdum hjá Caldari mönnum. Þó þau voru ekki nærri því eins öflug og þau voru í dag voru þau samt stór hlutur í efnahagslífi Caldari manna.

Stuttu eftir að “stökk” hliðin voru uppgötvuð af Gallente fólki og Caldari þjóðinni einhverjum þrjú hundruð árum áður en Gallente ríkið var stofnað byrjuðu Caldari fyrirtækin strax að breikka sig út og byggðu nýlendur sem þeir héldu leyndum fyrir Gallente fólki. Það voru þessar nýlendur sem orsökuðu það hryllilega stríð sem ríkti á milli Caldari og Gallente.

Þetta byrjaði allt þegar könnunarskip Gallente manna óvart hitti á eina af þessum nýlendum. Þegar Gallente ríkisstjórnin komst af þessu vildi þeir strax fá stærðarinnar rannsókn á málinu og vildu að allar þessar nýlendur yrðu teknar yfir og færu undir þeirra stjórn. Þetta var of mikið fyrir Caldari fyrirtækin. Þetta var einföld spurning, að missa öll völd hægt og rólega eða svara fyrir sig. Þeir völdu að svara fyrir sig.

Það sem gerði ástandið eins spennuþrungið og það raun var, var sú staðreynd að Caldari Prime var staðsett í sama sólkerfi og Gallente Prime og það gerði Gallente menn mjög taugaóstyrka og einnig var stór hluti Gallente manna staðsettur á Caldari Prime. Stuttu eftir að Gallente menn uppgötvuðu þessar nýlendur fóru Caldari fyrirtækin að reyna að taka yfir “stökk” hliðin sem lágu að nýlendum þeirra en Gallente menn komu fyrir flota og lokuðu allri umferð um Caldari Prime.

Næstu dagana gerðist ekkert. Caldari menn biðu við “stökk” hliðin meðan Gallente menn rifust um hvernig væri best að semja um frið. En Caldari íbúarnir á Caldari Prime vildu ekki una við núverandi ástand. Þeim fannst það að plánetan þeirra væru lokuð af væri óþolandi og fljótlega urðu allar þessar smáu árásir og Gallente flotann urðu stórar og stríð braust út. Á endanum þurftu þeir Gallente menn sem bjuggu á Caldari Prime að borga verðið fyrir það sem ríkisstjórnin var að gera.

Stríðið fyrst byrjaði fyrir alvöru þegar Caldari menn drápu yfir hálfa milljón Gallente manna á Caldari Prime þegar þeir unnu skemmdarverk á neðansjávar borg þeirra Nouvelle Rouvenor. Gallente menn brugðust við undireins og sendu inn herdeildir á Caldari Prime og byrjuðu kerfislega að varpa sprengjum á plánetuna. Fljótlega voru Caldari íbúarnir fastir inní skógum og uppí fjöllum að reyna að berjast á móti gífurlega aflinu sem ríkti á meðal Gallente manna. Mótstaðan varð veikari og veikari með hverjum deginum. Eina spurningin var: hvernig myndi nýstofnuð ríkisstjórn Caldari manna bregðast við ?

“stökk” hlið = jumpgates :)

Hluti 2 kemur fljótlega og svo hluti 3 rétt á eftir honum.

Rapt | Bubbaloo