Sælt veri fólkið,

Þar sem að flæði greina inn á hugi.is/eve hefur ekki beint verið gott þá ætla ég að efna til skemmtilegrar keppni sem háð verður með þessum hætti:

“Hugarar” senda inn greinar sem tengjast EVE leiknum, þjóðfélagi þess, character, skipum eða eitthvað því tengdu inn á hugi.is/eve. Greinin skal vera vel skrifuð með bilum og öðrum greinamerkjum. Adminar á hugi.is/eve yfirfara síðan greinina og ef hún birtist þá hefur þú fengið eitt stig.

Sá sem hefur flest stig þegar keppninni lýkur verður lýstur sigurvegari og fær hans “character” í EVE umfjöllun sem skrifuð verður á hugi.is/eve af atvinnublaðamanni.

Þessi keppni verður í gangi til 25. ágúst n.k. en verið er að vinna í verðlaunum keppninnar.

Það má geta þess að ég mun gera allt sem í mínu valdi stendur til þess að veita sigurvegaranum áskrift/gamecard að EVE ( en er þetta þó einkaframtak sem hugi.is er ekki ábyrgur fyrir ). Vonum að “tiltekið fyrirtæki” sponsi okkur :)…

Vona að þið takið vel í þetta og byrjið að bera á ykkur júgursmyrsl fyrir átök við lyklaborðið ykkar.

Góða skemmtun og gangi ykkur vel…