Jæja,

Ég ákvað að láta ykkur vita loksins að áhugamálið EVE hefur gjörsamlega klifrað upp lista yfir vinsælustu áhugamálin hér á huga. Þetta er eflaust metaðsókn og hvort fleiri íslendingar hafa byrjað að spila EVE eða að eitthvað af þeim nýjungum á hugi.is/eve hafi fengið þessa miklu aukningu veit enginn en hún er svo sannarlega frábær.

Í mars var Eve með 15434 heimsóknir

Í apríl var Eve með 31466 heimsóknir

Þetta sýnir okkur að á aðeins einum mánuði hafa heimsóknir á hugi.is/eve fjölgað um tæp 100%. Eve er í 15 sæti yfir vinsælasta áhugamálið yfir þau 100 sem virk eru.

Stjórnendur hugi.is/eve þakka tíðar heimsóknir á áhugamálið og vona að við eigum eftir að klífa ennþá hærra upp vinsældarstigann í framtíðinni.

Við viljum líka benda fólki á að allir geta sent hugmyndir sínar um nýjungar, lagfæringar eða breytingar til GraPhiX hér á huga.