Jæja ég fór út í þessa geðveiki sem EVE er, loksins kom ég mér að því að byrja að spila þennan “íslenska” leik sem allir hafa prófað í kringum mig.

Ég varð var að það er frekar flókið að komast inn í leikinn, en samt ekkert of erfitt, bara sona hæfilega og eftir smá tíma var ég kominn með frigate undir mig og eftir 5 daga spilun var ég kominn á “Indy”. Þá fór ég að taka eftir því sem mér finnst alveg furðulegt, það eru engir íslendingar hér, hvað þá einhverjir veterans. Ég er að reyna að finna mér corp og held að mining skillarnir hjá mér og gunnery geti gert mig að ágætis team member, en ég er að velta fyrir mér hvar ég finni risafyrirtækin og hvar ég geti farið að spila með guttum sem fara inn á 0.3> svæði og eru að mina fyrir alvöru pening. Ef einhver kemur inn á þetta áhugamál og les þessa grein, þá væri fínt að fá viðbrögð við þessum hugleiðingum mínum og kannski einhverjar hugmyndir hvert ég ætti að fara til að komast ´i samband við “stóru strákana”
takk fyrir mig
(EVE) Maximilian Levin