EVE spilendur! Þið ættuð að vera yfir þetta hafnir.

Svör og comment hér á EVE áhugmálinu eru til háborinnar skammar. Ég er ekki að segj að þetta sé allræmt og komi fyrir í öllum tilvikum, en mér finnst stundum vera fullmikið um skítkast og móðganir í greina svörum og þess háttar. Það er eins og menn geti ekki greint frá skoðunum sínum án þess að vera skotnir niður með fáránlegum móðgunum og svívirðingum.

Auðvitað hafa allir sína skoðun en væri þá ekki réttara að greina frá þeim án þess að kalla hinn “fífl” eða “homma” eða eitthvað þvíumlíkt. Mér þykkir leiðinlegt að sjá þetta. Þetta dregur úr mönnum og hefur þær afleiðingar að áhugmálið verði ekki eins active eins og það gæti verið ef menn myndu ræða saman eins og siðmenntað fólk.

Mönnum greinir á um marga hluti sem er bara eins og gengur og gerist og vill þá oft fara svo að riffrildi brjótast út í greina svörum eða á korknum, að mínu mati er nokkri sem sleppa sér kannski full mikið í þessum riffrildum og fara að koma með eitthvað leiðinda skítkast. Cant we just all get along ppl:)

Með von um að fá góð og gild svör. Vonandi á skítkasts og móðgana:)

Copernikus: Proud member of Oracle minmatar freedom fighters