Þetta er sagan af honum Kel'Thuzar ljóta sem fæddist Minmatar Brutor þann 27. september. Strax og hann fæddist leist honum ekkert á Minmatar regionið og forðaði sér hið snarasta … Eins ofbeldisfullur og hann var þá náttúrulega þurfti hann að skjóta á allt sem hreyfðist, þar á meðal plánetur og lögguskip. Vopnaður flottu Reaper skipi forðaði hann sér með von um betra líf.

Stuttu seinna hitti hann corp sem kallar sig Obnoxios Inc og þeir tóku Kel'Thuzar og slóu hann undan undir og sögðu honum að hegða sér vel. Hentu honum í næsta asteroid beld og sögðu honum að mina. Hann gerði svo enda allir voða góðir við hann .. gáfu honum að borða og leyfðu honum að hlaupa um í kringum þessa fallegu sól.

Tíminn leið og Kel'Thuzar lærði merkileg fræði um Frigate. Þá fór hann og keypti sér Probe. Það var voða gaman og hamingjan bara alveg að gera allt vitlaust. Svo þegar kallinn var að mina og setti bara skipið á automine og fór svo að borða, þá komu ljótir sjóræningjar og sprengdu fallega Probe'inn og þá varð hann rosa reiður og fór og keypti sér Rifter og fullt af byssum og sór þess eið að á meðan hann drægi andann þá væru þessir sjóræningjar ekki óhultir í heimi EVE.

Að svo sögðu fór Kel kallinn á sjóræningjaveiðar og lifði vel á því. Svo einn daginn þá var Kel að leika sér með nýja scannerinn sinn sem scannar vopnaburð skipa … miðaði hann á flott Battleship sem átti þar leið hjá en skaut óvart á ferlíkið. Skipstjórinn á því skipi var ekki skemmt og hófst mikill eltingarleikur kattar og músar sem endaði með því að músin bað fyrir lífi sínu og stakk köttinn af. Kel hljóp heim vælandi og skælandi yfir þessari hræðilegu reynslu og hefur varla farið frá sólkerfinu síðan .. Núna er hann hinsvegar að læra á Cruiser og er voða glaður með líf sitt.

Framhald seinna …

Kveðja
Kel'Thuza