Þetta byrjaði allt snemma á laugardagsmorgun, flestir voru að mina eða drepa instaspawn þegar óvinurinn (EVOL and pals) byrjuðu með stórmennsku brjálæði og skutu á allt sem hreyfðist og sögðu að þeir væru ekki á “safe list” og væru ekki velkomnir í Fountain.

Það voru drepnir ca 15 flugmenn (það er engin nákvæm tala ennþá) áður en stríðið í raun byrjaði, EVOL and pals fóru með offorsi í hvert belti og öll helstu sys í Fountain til að reyna hræða einstaklinga og corp til að fara burt: Það tókst ekki betur en svo að við hópuðumst saman í reiði okkar og mynduðum bandalag.

Það tók um 5 tíma að safnast saman og henda innrásarliðinu út, enda mörg lítil Corp sem standa að þessu bandalagi og erfitt að skipuleggja með svona mörgun sem ekkert eru í raun tengdir saman.
Við söfnuðumst saman í þeirri von um að geta haldið Fountain frjálsu fyrir þá sem vilja koma til að mina og/eða drepa rottur, það getur hver sem er komið svo lengi sem hann kemur í friðsamlegum tilgangi, við erum komnir með gott samskiptanet núna og ef það verða einhver læti þá verða allir komnir til hjálpar innann nokkurra mínútna.

Eftir að við höfðum skipulagt okkur þá gerðum við atlögu að EVOL and pals við stöð í MN5N-X þar sem þeir voru að bíða eftir okkur, en það sem þeir greynilega hafa ekki fattað er að sá sem ræðst á blockading her hefur alltaf eliment of surprise með sér, það er að segja þeir vita ekki hvenær við komum, bara að við munum koma og eins og sýndi sig þá var þeim nær útrýmt á þessu augnabliki, þeir sem gátu dockuðu helsærðir í stöðina en þeir minna heppnir voru sprengir upp áður en þeir gátu nokkuð gert, bæði lið misstu cruisera og Battleship í þessari skæru en innrásar liðið missti miklu fleiri skip en við, en þeir hafa samt tekið fleiri skip frá okkur ef talið er með alla þessa sem þeir drápu fyrr um daginn.

Núna standa yfir viðræður um það reyna binda enda á þetta á sem besta máta og er þá cease fire hjá okkur núna, en það getur breyst hvenær sem er :)

Þetta er búið að redda leiknu fyrir mér og ef ég missi Bshipið mitt þá mun ég glaður mina til að smíða nýtt til að geta haldið áfram að taka þátt í svona gullmolum sem Eve hefur að geyma.

Leikurinn var gerður sem Player versus Player (PvP) og ég vona að við eigum eftir að sjá miklu meira af svona stríðum vegna þess að þetta er það sem kemur hjartanu til að slá hraðar, skip getum við alltaf bætt, vopn getum við alltaf bætt, modules getum við alltaf bætt en leiðinlegur tími við að mina allann tímann eða vera drepa NPC rottur er ekki hægt að skipta út.

Skemmtið ykkur :)

Omniwar
Tycho Heavy Industries
Free Fountain Alliance