Leiðist þér að mina í EvE? Er ekkert að gerast í fyrirtækinu? Langar þig til að taka þátt í þeim ævintýrum sem eiga sér stað í dýpi alheimsins?
Þá ferð þú á rásina “Íslenska gengið” í EvE og tekur þátt í svaðilför Íslenskra ofurhuga til að taka á sjóræningjum og eignast þá spennandi fjársjóði sem finnast og efla þig í harðri tilveru EvE heimsins.

Íslenska gengið er ekki fyrirtæki, það er eifaldlega gengi fyrir íslenska spilendur sem vilja fá útrás fyrir þann sprengikraft sem býr í skipum þeirra, en fá ekki tækifæri í daglegu amstri fyrirtækis síns að nýta þann kraft. Svo eru auðvitað þeir spennandi og framandi hlutir sem fást ekki á mörkuðum og standa venjulegum búnaði framar sem félagar í genginu eignast.
Allir velkomnir að taka þátt í eflingu íslenskra spilara!!! Byrjendur sem og lengra komnir

Við erum íslendingar, látum nú aðeins finna fyrir okkur!!!


Íslenskt JÁ TAKK!!!
Chelsea till I die!