Hvað er svona gaman að vera spila allan daginn í EVE, bara til að geta keypt ný skill og nýjar græjur til að geta minað meira heldur en daginn áður ?!?!?!?!?

Ég byrjaði að mina eins og brjálaður til að komast á cruiser sem fyrst til þess að geta spilað fyrir alvöru, núna á ég nokkra cruisera og helling af græjum til vara ef ég skildi drepast og missa skipið sem ég er á, ég býst við því að missa nokkra cruisera á þessum tíma sem ég verð að spila EVE vegna þess að ég ætla að vera fighter ekki miner eða trader.

Það er eitt það skemmtilegasta við þennan leik hvað maður er frjáls til að gera það sem manni langar til, ég til dæmis ætla að vera podda eins marga og ég get, en ég hef samt ekkert gaman af því að vera á cruiser og ráðast á frigates og leika mér að því að podda þá, þeir sem eru enn á frigates eru annað nýbúnir að missa cruserinn sinn eða eru það nýjir að þeir eru einfaldlega það nýjir í leiknum að þeir hafa ekki haft tök á því að kaupa sér cruiser, ég er ekki að skemma fyrir þeim sem eru að byggja sig upp. Þegar ég sé cruiser þá reyni ég að podda hann vegna þess að hann hefur að minnsta kosti möguleika á að verja sig og podda mig eða einfaldlega flýja frá bardaganum, ég er að gera svipaða hluti að m0o nema að því leiti að ég er ekki að ráðast á minni skip sem geta ekkert gert í því nema bara býða eftir því að skipið springi.

Hverjir hér eru til að koma og leika sér smá, við félagarnir erum að fara stofna Corp eftir ca. 2 vikur og verðum þá 6 manns og erum allir Íslendingar og spilum þar af leiðandi á sama tíma, sem sagt á kvöldin og mest allan tíman um helgar.

Við erum tilbúnir að hjálpa þeim sem eru á frigates þegar þeir joina að komast á cruiser, en við gefum engum neitt, við hjálpum, það munu allir fá jafnan hlut úr því looti sem fæst við pod, það eru góð vopn, góð modules og svo það sem getur leynst í cargo hjá þeim. Ef þá átt ekki cruiser en langar að joina þá verður þú fljótari að safna fyrir cruiser með okkur en að vera mina allann daginn. Ef einhver missir cruiserinn sinn í bardaga sem við erum í þá slá allir í púkkið svo að hann komist strax á nýjan að hanns vali.

Hver sá sem finnst sekur af því að ráðast á svokallaða n00bs verður eltur uppi af okkur og poddaður, hvort sem það er meðlimur okkar eða annarra pirate corps, (m0o, M3G4, FOA, Da-Dragons) og svo framveigis.

Ef þú hefur áhuga á þessu sendu mér þá HUGA mail. en það verður ekki stofnað corpið fyrr að minnsta kosti einn okkar er kominn á Battle Ship.

Höfum gaman að þessu, ekki bara þræla svo að aðrir geti leikið sér.