The Collective Við erum með starfsemi í 2 regions. Kador þar sem við starfrækjum Trade, Manufacturing og Science ásamt Boot Camp. Stain er seinni regionið og erum við einn af stofnendum Stain Alliance. Þar er Mining, Manufacturing, Tactical, Intelligence Agency og Special Operations Agency staðsett. Stain eru í raun 3 region, 2 sem eru aðeins aðgengilega í gegnum Stain og eru þau öll undir stjórn Stain Alliance. Stain Alliance er núna um 15 fyrirtæki og telur um 4-500 manns.

The Collective byggir á teamwork. Við vinnum allir saman að sameiginlegu markmiði og líkar okkur ílla sóló spil sem fyrirtækið hagnast lítið á, enda hægt að margfalda gróða ef framkvæmdir eru hlutirnir 2 eða fleiri saman. Fyrirtækið á allt en sér á móti meðlimum fyrir öllum sem þeir þurfa fyrir sína starfsemi. Við skiptum okkur niður á Region og í Agency sem hefur hvert sitt skilgreinda verksvið. Agency er stjórnað af Chief en hvert region er stjórnað af Region Manager sem stýrir alfarið allri starfsemi í sínu region. Við notum mestmegnis lvl2 og lvl3 cruisera í starfsemi okkar en erum núna að framleiða 2 Armageddon BS til að útvíkka starfsemi okkar og erum að vinna okkur að Apocalypse BS BP.

Við erum aðallega Amarr fyrirtæki en getum tekið við hverjum sem er þar sem við getum fengið framleitt nær öll skip leiksins gegn minerals sem þarf í framleiðsluna. Nýjum meðlimum er séð fyrir cruiser eftir Boot Camp ef þeir hafa ekki komið sér á þannig nú þegar. Við erum um 40 manns en auðvitað hluti þeirra inactive, erum á aldrinum 20-30 og hardcore spilarar flestir úr ýmsum geirum online leikja.

Við erum alltaf að leita að góðu fólki sem veit hvað það er að gera og eru hardcore spilarar. Við tökum ekki við krökkum þar sem við höfum ekki áhuga á því að vera leikskóli og sinna uppeldi ;)

Til þess að fá aðgang þarftu að hafa meðmæli einhvers núverandi meðlima. Einnig erum við tilbúnir að skoða inntöku minni corp til okkar, þá myndi viðkomandi fyrirtæki alfarið sjá um starfsemi í þeirra eigin region.

Ef þú telur þig hafa erindi inn til okkar, villt spila með fullorðnu fólki sem skilur orð eins og að “teamwork” og “traust” skaltu leita upp einhverja af meðlimum okkar sem þú þekkir. Við erum núna með meðlimi frá hux, murk, skjálftap1mpum, GroundZero, GriD, Sah og Necro svo eitthvað sé nefnt. Það er fólk frá okkur á #quake.is, #eve.is á Ircnet og #eve-online á Stratics.

Emperess, CEO
The Collective
Stain-Alliance