Áður hefur komið inn korkur um stofnum kryptonite inc. en nú vil ég gefa smá update hérna á stöðu corpsins.

Við erum núna aðeins 6 meðlimir og erum að stækka við okkur á fullu og vonum að stækka nóg til að geta orðið eitthvað stórir. Við vorum að kaupa Cruiser handa einum meðlim okkar og vonumst við til þess að annar fái Cruiser bara um helgina sem yrði býsna fínt.
En innan viku búumst við við því að allaveganna 4 meðlimir corpsins verði komnir á Cruiser. Núna eru allir á frigate fyrir utan þann sem fékk Cruiserinn í dag. Ég sjálfur flýg Probe, Merlin og Badger en verð 3 maður að fá Cruiser og yrði það líklegast BlackBird.

Við erum Caldari en erum multi-race corp og erum mjög stoltir af því miðað við hvað við erum litlir.

Fjármál fyrirtækisins eru í góðu standi en í dag eyddum við 5 milljónum fyrir Cruiserinn en græddum 3 til baka núna á Notime með því að mina Omber en cruiserinn getur haft 3 mining geisla. Mörgum stórum myndi finnast þessar milljónir okkar vera skiptimynt en við lítum ekki svo á þar sem, eins og ég hef áður tekið fram þá eruð við aðeins 6.

Allir eru velkomnir í þetta corp hvaða þjóð sem það er en við reynum að halda okkur íslenskum.

Það sem corp-meðlimir eru að bardúsa núna er að mina og raida convoys en við höfum ekki verið að gera það sérstaklega lengi og höfum aldrei lent í neinum vandræðum með það.

Vona ég að þessi lesning hafi hjálpað ykkur og heimasíðan okkur er http://www.hn.is/pthd/krypt.