Mig langar að kynna fyrirtækið mitt IMPETUS INC. IMPETUS INC er Minmatar “only” eins og stendur, Við erum 7 einstaklingar eins og er og fjórir af okkur úr betunni, 5 Íslendingar og 2 Svíar. Við höfum ekki ákveðið hvaða “ROLE” fyrirtækið á að gegna en takmark okkar eins og er, er að koma okkur upp góðum og sterkum flota. Við erum vingjarnlegir við all og viljum öllum vel. Erum ávalt fúsir til að hjálpa. “Það er sælla að gefa en þyggja” hefur verið mitt motto síðan í betunni, það getur komið sér vel seinna :) Við erum á móti einokun og drottnun (kanski ástæðan fyrir því að við erum Minmatar:)). Við erum ekki í samstarfi við önnur fyrirtæki eins og er. Í betunni vorum við í samstarfi við RUS, það samstarf gekk ágætlega en við höfum ekki ákveðið hvað gera skal á næstunni (Er ekki að segja þetta í illu en RUS eru málhöltustu menn sem ég hef hitt í EVE:)). Ég las grein um samstarf íslenskra fyrirtækja einhverntímann hér á huga.is, þetta voru einhverskonar hagsmunasamtök sem Raid Enterprise komu á laggirnar, gott framtak, við þurfum að vernda hagsumin okkar í EVE alveg eins og í raunveruleikanum. Ef þú lesandi góður hefur einhvern grun um hvaða samtök ég er að tala um endilega hafðu samband við mig í leiknum(nafnið er Hamrammur).