Ég er hér með formlega að vara fólk við náunga einum, fyrir hönd Exelon technologies. Þessi gaur kallar sig CFM. Eða gerði það allavega þegar hann framdi örugglega stærsta glæp í Eve, hingað til. Það er nebblega mál með vexti að hann tók sig til og stal af okkur 3.5 milljónum. Ekki veit ég hvað það gæti talist í íslenskum krónum, en skilst mér að það sé alveg heill hellingur…

Hvernig?? Það er spurning. Mér skilst að hann hafi átt að nota einhvers konar krakk (þeas tölvukrakk ekki alvöru krakk) og lumað öllum þessum pening. Þó að við séum ekki það fúlir (vegna þess að þetta er betan og allt á eftir að þurrkast út og byrja upp á nýtt í alvöru leiknum) þá viljum við samt fá smá hefnd, en aðallega vara ykkur elskurnar við.

Samt sem áður á að hafa verið búið að flengja þennan gaur tvisvar, af einhverjum náunga sem ég man ekki hvað heitir.

Mér, og öllum mínum félögum í Exelon, finnst það MJÖG ólíklegt að þessi gaur heiti ennþá CFM, en ef þið sjáið gaur sem heitir CFM þá skulið þið gera sjálfum ykkur og corpinu ykkar greiða og blasta gaurinn til helv. með júrópopp á kantinum.

Fyrir hönd Exelon Technologies
[eXe]SmEpp1
indoubitably