Hefur þú spurningar sem þú hefur ósvarað í hausnum þínum varðandi, Black & White, Black & White: Creature Isle, Black & White 2 eða aðra leiki sem Lionhead Studios framleiðir ?

Eins og hugarinn Mutter benti okkur öllum á í korki hér í B&W2 umræðuefni er e-mail sem þú getur sent á til þess að fá svör:
<email>ccampos@lionhead.com</email>

Mundu bara að senda inná B&W2 korkinn hvernig spurning þín hljómaði og hvernig svarið var. Eða senda inn spurninguna og síðan svarið seinna (eykur korkana).

Ég hef margar spurningar sem ég er ennþá að setja inná blað og ég mun pósta á B&W2 korkana.

Ég hef einnig mjög margar spurningar um The Movies, Black & White (belive it or not) og einnig Creatures Isle!

Þetta eru allir dásamlegir leikir sem aðeins snillingar geta fattað uppá (þó ég hafi ekki sjálfur prufað The Movies mun ég koma til að gera það og spurja JReykdal sjálfan, að gera gagngrunn fyrir okkur á http://static.hugi.is þannig að það sé hægt að uploada mjög mikið af efnum (trailers af bíómyndum og einnig bíómyndum).

Þetta mun eflaust vera mjög erfitt verk fyrir alla, því þú þarft að hugsa um allt! Þú færð ekki bara pening í hendur og átt að geta gert allt strax. Þetta er leikur sem þú þarft að hugsa útí, borga leikurum þínum og borga fyrir allt.

Ég vil kveðja að sinni og mun ég pósta inn spurningum sem ég hef sent inn á korkana :)

kveðja, derin.

P.S. Ég er að fara útí það að gera kork hér undir nafninu „Aðrir Lionhead Studios leikir“ en spurningin er, er það þess virði? Munt þú taka þátt í því að spjalla um aðra leiki? Ef svo er, svaraðu þessarri grein og láttu vita! Þú hefur rödd hér, notaðu hana!
Kveðja, Nolthaz.