Jæja! Núna er ég komin í jólafrí frá skólanum (9.bekk) og við áttum að senda kort og allt það! Ég senti bara 1 kort til kærustu minnar en mig langar að senda 1 til ykkar! Ástæðan fyrir því að þetta er í grein er vegna þess að ég vil gefa ykkur tækifæri til þess að tjá ykkur og svara með fallegri jólakveðju til baka :)

Til: Ykkar

Frá: derin

Gleðileg jól öll sömul og farsælt komandi nýtt ár! Vonandi hafiði það gott um jólin! Skemmtið ykkur á þessu nýja ári og munið að geyma alltaf barnið inní ykkur :)

Jólakveðja, derin!
Kveðja, Nolthaz.