Jæja ég fékk póst um að einhverjum vantar hjálp við þessa eyju, ég verð sjálfur að segja að þegar ég prófaði þennan leik fyrst þá fannst mér þessa eyja über erfið! En hinsvegar komst ég framhjá því að finnast hún erfið einhverntíman aftur!

Þannig er mál með vexti að þú kemur frá aðrari eyju þar sem Lethys er nýbúin að taka dýrið þitt og er með það í haldi hjá sér og eina leiðin til þess að ná því er með því að ná 3 baseum sem engin hefur vald yfir nema hann Lethys hefur vald á einu basei. Þannig þetta er meira heldur en minna spurning um tíman því þú mátt ekki hangsa mikið!

Það sem þú byrjar á að gera er að koma basinu þínu í gott stand, nóg af húsum og mat og tré og allt það og lætur fólk fæða(breeda) gerir það með því að taka karlmann/kvenmann og lætur hann/hana hjá konu/karli.

Áður en þú byrjar á að reyna að ná basinu skalltu leita af “SILVER SCROLL” rétt hjá base #2. Klikkaðu á það og þá ferðu til karls á fjalli sem er svona gúrú gaur og segir við þig að elta sig ekki því hann er að fara á leynistað til þess að “meditada” s.s. safna orku á vissan hátt :) Jæja en það sem þarf að gera er að elta hann niður fjallið án þess að hann sjái ykkur. Það koma 2 save point og þegar það gerist merkir það að hann sé að fara að stoppa og líta í kringum sig (þetta gerist hjá sveppum). Jæja loks er þetta búið þá segir hann við þig um að hann muni birtast þegar þú þarft á honum að halda!

Þegar það er búið og þú telur þig hafa nógu gott influence til þess að ná hinu basinu þá skalltu byrja á að vera doldið snjall og hræða þau með því að kasta grjóti AÐ basinu þeirra þannig einhverjir sjá og líka með því að kasta trjám í village store. Síðan byrjar þú á að nota galdra, notar food í village store og wood líka. Kastar eldboltum líka í basið en passaðu þig á að brenna engan. Um leið og þú nærð baseinu þá fer 1 totem sem heldur dýrinu þínu föstu. Eftir aðeins örfáar mínútur segir Lethys við þig að þú dirfist virkilega að drepa hann sama þó hann hafi dýrið þitt og sér síðan að nokkrir menn þínir hafa farið á strönd rétt hjá basinu þínu #2. Og hann kveikjir í þeim! Eins og gúrúinn sagði þá kom hann og gefur þér nokkur water miracles sem þú þarft að nota til þess að slökkva á þeim. Vertu varkár og hittinn því þú færð minnir mig bara 2 kraftaverk. Ef þú nærð ekki að slökkva í þeim öllum skalltu taka þá og henda þeim smástund í vatnið og taka þá uppúr.

Þegar að þú ert búin að koma báðum baseunum þínum í gott stand og allir eru ánægðir og þú ert með gott influence til þess að vinna hitt basið skalltu vinna við það. En og aftur notaðu sömu trick og seinast með tré,mat og allt það! Því þá verður þú sneggri að vinna það.

Vandræðin með þetta base er að þegar þú vinnur það, að þá kemur Lethys og sendir úlfa á basið þitt og ef úlfarnir komast þá taparu basinu og það tekur ennþá lengri tíma í að vinna það aftur. Þegar Lethys sendir úlfana á þig að þá kemur gúrú gaurinn og breytir helling af úlfum í beljur. Þannig það eina sem þú þarft í raun að gera er að drepa þá, mín leið var að taka alla úlfanna og kasta þeim í vatnið, en þið verðið að passa ykkur að kasta þeim POTTÞÉTT ofan í vatnið! Því ég lenti í því að eftir svona 10 mín að þá kom 1 lifandi úlfur að basinu og ég tapaði því. Já ég var pisst.

Anyway þá er það bara að annast öllum baseunum þínum gera hús og allt það láta fæða mikið. Eins og þú sérð er #3ja basið langt frá #4. Þess vegna þarftu að vera þolinmóður. Því enn og aftur kemur gúrúinn og telur sig vita að þú munt eiga í erfiðleikum með að ná base #4. Þá gerir hann þér kleift að byggja “WONDER” sem increasar influencið og gerir margt fleira.

Láttu fullt af fólki byggja og mundu að þetta tekur mikið af wood. Síðan er það bara að vinna við basin. Safna influence og þegar að þú ætlar að vinna basið er mjög sniðugt að stúta village center. Því þetta village (#4) hefur Shield galdranna! Þegar þú stútar því getur fólkið ekki worshippað í því basi.

Þegar þú vinnur það base og færð dýrið þitt, þá er málið að reyna að ná base #5. Því um leið og þú byrjar á því og ert komin langt í því þá kemur Lethys og biður þig um að fara í Land 4.

<a href="http://www.hugi.is/bw/bigboxes.php?box_id=63440&action=cp_grein&cp_grein_id=1734“> Hérna er grein með Land4 </a>

<a href=”http://www.hugi.is/bw/bigboxes.php?box_id=63440&action=cp_grein&cp_grein_id=1749"> Og önnur grein.</a>

Mundu að þú getur samt lengt borð 3 aðeins meira ;) Með því að ná 5ta basinu og drepa Lethys :>

kv. derin
Kveðja, Nolthaz.