Komið sælir strákar. Þetta er gamli stjórnandinn hér (og nú verandi :)). Ég kom með uppástungu, fyrir löngu um að við myndum gera eitthvað saman, sem sagt allir ofur áhugamenn á Lionhead Studios leikjum og auðvitað allir sem vilja.

Ég hef alltaf reynt mig besta að hafa þetta áhugamál þétt og sem virkast og hægt er en því miður þá hefur það ekki gengið mjög vel hjá mér.

Ykkur finnst þetta kannski fáránlegt en við erum allir Íslendingar og við ættum að gera eitthvað saman, ekki djamma eða neitt þannig bara, hittast og kynnast.

Ég sting upp á því að við förum allir út að borða og förum svo í bíó og spjöllum aðeins saman og skemmtum okkur? Eru einhverjir sem taka í þetta vinsamlegast commentið hér OG sendið mér prívat skilaboð, ég ætla athuga fjöldann og reyna að plana eitthvað sem kemur síðan í grein í “Frá Derin”.

Vonandi taka allir vel í þetta.

Kveðja, derin / Björgvin.
Kveðja, Nolthaz.