Ég hef oft verið að pæla í því þegar Black & White 2 kemur út hvað ég eigi eftir að gera, ég hef stundum orðið stressaður útí hvað ég á eftir að skrópa í mörgum tímum í skólanum til þess að vera í B&W2 og þannig slíkt.

Ég hef líka verið að pæla í því hvað ég á eftir að vera að gera þegar ég heyri að B&W2 er kominn í hillurnar. Þar sem að ég á heima í njarðvík, sem er 45 mín frá RVK, þarf ég að fara keyrandi (sem betur fer með bílpróf þannig að ég er góður, bara missa það ekki þangað til :D ).

Einnig hef ég verið að pæla í því hvað ég eigi eftir að gera á meðan leikurinn installast á tölvuna mína. Ég á eflaust eftir að þurfa að taka e-ð róandi eða jafnvel örvandi eins og þeir ofvirku gera (counter-effect eða e-ð crap) og síðan þegar ég hugsa um að hann sé búinn að installast á tölvuna mína þá slær hjartað mitt smá auka hnikk og síðan reyni ég að gleyma þessu því þetta lætur bara tíman líða hægar.

heh, ég hugsa stundum um þetta og þar sem að þetta tengist Black & White 2 þá fannst mér viðeigandi að láta ykkur B&W félaga mína vita af þessu.. heh endilega komið með einhverjar sögur af ykkur að hugsa um B&W2 bara svona rétt áður en hann kemur út Í HAUST
Bara.. tilbúinn.. ?