Jæja, núna eru um 3-5 mánuðir þangað til að við getum farið að búast við því að leikurinn fari að koma út. Það er óhætt að segja að þetta er búin að vera MJÖG löng bið. Sjálfur var ég að farast úr spenningi þegar ég hélt að hann myndi koma út í febrúar en svo var víst ekki. Ég er búinn að skoða margar myndir af netinu um leikinn og af fólkinu sem er að búa hann til og er óhætt að segja að þau eru svo sannarlega að vinna sína vinnu. Þetta er verður alveg rosalegur leikur og má fólkið frá Lionhead vera stollt af sínu fólki fyrir bæði vinnusemi sína og hæfni.

Ég get enn ekki beðið í dag og geri mér miklar væntingar um þennan leik. Ég vona svo sannarlega að hann standi undir væntingum og miðað við það sem ég hef sé og lesið á ég ekki von á öðru.