Það er loksins að koma ný tölva á heimilið þannig að ég ætti að geta spilað Black&White aftur en þetta verður XP tölva. Ég veit að margir hafa átt í vandræðum með að spila Black&White á XP tölvum þannig að ég spyr ykkur, er ekki hægt að spila Black&White á þeim og ef að tölvan er með leiðindi, hvað er þá hægt að gera? Hún kemur þó ekki nema á miðvikudag en ég veit að greinar og korkar taka dálítið langan tíma að komast að þannig að ég spyr ykkur núna þótt að ég viti ekki hvort að þetta virki;).
Kveðja, Sigtryggur.