Ég leik tvo guði, einn sem ég nota í alvöru til að vinna og þar er allt voða gott, svo er annar sem ég nota til að fá útrás og svona og leika mér að skemma með öllum offensive miracles sem eru í skirmish.

Gallinn við B&W er sá að í Góða seivinu mínu er ég mjög lengi að loda því og þegar ég starta B&W upp þá lodar hann því og svo þarf ég að fara í options og loda hinu þar á eftir.

Þá kom ég auga á mjög sniðugt tól, B&W player selector, og er komin ný útgáfa af því. Hún styður Windows XP útlit (ég er með það) og Creature Isles seiv líka þannig að ég DL-aði þessu.

Þegar ég reyndi að installa forritinu svo þá kom alltaf eitthvað error, eitthvað nott allowed að installa, hef ekki hugmynd um af hverju.

Ef einhver er með XP þá bið ég hann um að DL þessu, ekki bara til að gá hvort það virki, heldur er það bara flott í alla staði, og segja svo hvort sá og hinn sami hafi getað installað því.

a href="http://www.planetblackandwhite.com/bwgarage">Heimasíða B&W PlayerSelector</a