Ég er að spila B&W og er neutral guð í 1. borði að reyna að stækka dýrið mitt (apa) áður en ég fer að spila leikinn fyirir alvöru.

Mig langar að vera góður guð því að mér finnst það betra, ég á mjög auðvelt með að gera dýrið mitt gott, hef það bara í leash of compassion, en það er erfiðara með mig sjáflan sem guð.

Alignmentið mitt núna eftir um 4ra tíoma spil er 0.03, semsagt næstum alveg neutral, samt hef ég leyst öll silver scrolls á góðan hátt og verið að gefa þorpsbúum mat og svona, það bara gegnur ekkert.

Svo ef maður tekur smá flipp og drepur smá og rústar þá er alignmentið komið langt niður!

Þeir sem eru góðir: Hvernig farið þið að því?