Bara svo að þið vitið það þá er galli í fyrsta questinu. Það er þar sem að þú átt að koma veika eiginmanninum aftur heim og fá 2. steininn að launum. Ef að þú sækir manninn, passaðu þá að láta hann frá þér og ekki reyna að taka hann upp aftur. Ég greip hann óvart strax eftir að hafa sleppt honum, en því miður hélt leikurinn að ég hefði lokið questinu og setti af stað atriðið þar sem að hjónin faðma hvort annað.

Til allrar óhamingju var maðurinn enn í loftinu (þ.e.a.s. í hendinni á mér) svo að þau gátu ekki faðmast. Afleiðingarnar voru frost á fróni. Leikurinn heldur áfram, en þú getur ekki skippað framhjá atriðinu og þannig dæmdur til þess að endurræsa tölvuna, eða nota “Ctr-Alt-Del” aðferðina.

Vildi bara vara ykkur við, því að ég hafði ekkert vistað leikinn síðan ég byrjaði.<br><br>Royal Fool
“You've been Fooled”